Sunday, 21 April 2013

Partur 1. Byrjun, flug og Kuala Lumpur

Gaui
Ég ligg uppí rúmi á Tune Hotel í miðbæ Kuala Lumpur um 23:00 með Henný mér við hlið að horfa á Zombieland í sjónvarpinu, bæði dauð uppgefin eftir sólarhringsferðalag.

Eftir hræðilegan miðvikudag og tveimur laptoppum fátækari sváfum við ágætlega um nóttina og vöknuðum frekar hress og tilbúin í langt ferðalag.
Henný
Ferðin byrjaði ekki sem best.  Það var ekki gaman að fá símtal í vinnuna og fá að vita að það hafi verið brotist inn til okkar.  Sem betur fer virtist þetta bara hafa verið tækifæris glæpur en ekki skipulagt.  En hér erum við tölvunum fátækari. Eitt sem fékk okkur til að hlægja var að þjófurinn tók plat veskið hans Gaua.
Hún fór úr með rammanum
Ramminn í maski
Hurðin sjálf var heil

Skófar á hurðinni
Það var smá kraftur í kallinum
Lásinn heill












Gaui var flottur
Sætur ný rakaður
Tilbúin í slaginn















Gaui
Lögðum af stað um 10:30 upp á Heathrow með túbinu sem tók rúman klukkutíma.  Flugum með Egypt Air sem er fínasta flugfélag, flugvélin var ný en við kvörtuðum við hvort annað um hvað það var lélegt bíómyndaúrval og við nenntum hvorugt að lesa.  Horfðum á grínmynd með Kevin James "Here comes the Boom" sem kom mikið á óvart og við hlóum mikið. Áður en við fórum í vélina, eftir að við tékkuðum okkur inn og við vorum að sýna boarding passann fattaði Henný að við vorum bara með miða til Cairo þar sem við áttum að millilenda en enga miða til Kuala Lumpur.  Sem betur fer náðist að redda því og við fengum nýja miða.  Flugið til Cairo tók um 4.5 klst. og var fljótt að lýða.  Sáum pýramýdana úr flugvélinni en ekkert súper vel afþví það var myrkur og þeir langt í burtu en upplýstir.  Flugvöllurinn í Cairo var ekkert spes, gamaldags, léleg loftræsting og volgt gos en stoppuðum sem betur fer ekki lengi.

Henný

Ferðin uppá völl gekk áfallalaust fyrir sig.  Full lengi að lýða fyrir okkar smekk en hafðist.
Check in gekk hratt fyrir sig og við náðum að fá okkur að borða og kaupa blöð fyrir flugið.  Þegar við vorum í röðinni til að fara um borð í vélinna fórum við að pæla í að farmiðinn okkar sagði bara Cairo en ekki Kuala Lumpu.  " Þetta reddast" hugsuðum við og ætluðum bara að bíða og sjá til í Cairo.  En þegar það var verið að skoða miðanna ákvað ég að spurja til öryggis.  Sem betur fer!  Manneksjan sem hafði tékkað okkur inn gleymdi að láta okkur fá miðanna.  En það reddaðist.  Fengum svaka góðann mat í vélini, kjúkling í sósu og horfðum á "Here comes the Boom" - Klippt fyrir arabískan markað þannig að ýmis atriði voru klipp út en hún var samt alveg ágæt. Skrifa þetta , horfi á sólalagið yfir Cairo og hlusta á Tony Bennett.  Fengum að sjá pýramýdana úr flugvélinni sem var magnað.  Sitjum á flugvellinum og bíðum eftir fluginu okkar.  Flugvellinum er haldið vel heitum á meðan það eru 15 gráður úti.  Þegar við vorum í vopnaleitinni áður en okkur var hleypt inn á flugvöllinn var ég að passa svakalega vel að allt væri á réttum stað og svona áður en ég labbaði í gegnum hliðið kom gaurinn til mín og sagði "Hurry up lady" ekki mikið að skoða skjáinn hehe.

Brjálað stuð í Cairo
Fyrsti útlenski peningurinn
Þreytt heitt og loftlaust í Bangkok


Við með ljótuna en frábært photobomb!
Allar myndir og þættir klippar til



















Gaui

Flugið til Bangkok tók um átta tíma og við sváfum um helminginn af ferðinni eftir að hafa horft á lélega mynd með Richard Gere "Arbitrage" sem Henný reyndar sofnaði yfir en missti ekki af miklu.  Það var frekar óþægilegt að millilenda í Bangkok afþví maður var komin með nóg af flugvélum og við áttum bara að stoppa stutt en það varð um tveir tímar og við þurftum að berjast við að halda okkur vakandi.

Lentum klukkan 18:00 í KL og flugið tók 2 tíma.  Hitinn var um 30 stig og rakinn mikill.  Flugin sjálf voru góð alla leiðina nema smá sjokk þegar flugvélin missti hæð yfir frumskóginum nálægt KL.  Maturinn í flugvélinni var líka ágætur, sérstaklega á leiðinni til Cairo en varð samt fljótt þreyttur afþví hann var mjög svipaður öll skiptin.

Biðum frekar lengi eftir farangrinum á flugvellinum í KL og okkur var ekki farið að lítast á blikuna þegar glitti allt í einu í rauða bakpokann minn á færibandinu.  Tókum "Ekspress" lest niður í bæ sem tók um hálftíma og frá KL Sentral tókum við Monorail til Medan Tuanku (stoppistöð) þar sem hótelið var.  Herbergið er mjög fínt og hreint  en lítið og ég er mjög ánægður með að Henný keypti "Cosy" pakkann sem sagt - sjónvarp, Wifi og loftkælingu!!.  Spurðum konuna í móttökunni hvar við gætum borðað í kringum hótelið og hún mætli með Lotus restaurant sem við fórum á, í 5 mínútna fjarlægð.  Frekar sleazy en mikið af local fólki á staðnum að fé sér að drekka aðllega afþví klukkan var seint.  Þjónninn talaði ekki neina ensku(örugglega sá eini í KL).  Ég reyndi að panta Chicken Laksa og benti á laksa á matseðlinum og þjónninn endur tók alltaf "chicken-chicken" og ég sagði já chicken. Henný pantaði sér tandoori chicken og fékk það.....en ég fékk mjög undarlegt chicken chop með frönskum, kokteilsósu og viðbjóðslegri piparsósu sem er best lýst sem súr-dökkbrún með kíló af pipar og kjúklingurinn var örugglega roadkill.  En tandooriið hennar Henný var gott og hvítlauks Naan brauðið líka.  Svo uppá hótel og í háttinn!!

Henný
Yfir Malasíu
Síðasti leggur ferðarinnar hálfnaður.  Biðin í Bangkok var frekar óþæginleg og lengri en var búist við en við höfðum það af.  Skemmtana úrvalið var ekki mikið í vélinni þannig að við hlustuðum á David Mitchell hljóðbókina.

Kuala Lumpur
Við vorum svakalega fegin að komast til Kuala Lumpur.  Ferðin frá flugvellinum gekk vel eftir að við fengum töskurnar.  Við vorum farin að halda að þær hefður orðið eftir í Cairo en sem betur fer var það bara dramatík í okkur.  KL Sentral stöðin var mjög ruglingsleg og mikil mannmergð en við fundum monorail-ið á endanum.  Hitinn er í kringum 30 stig og 80% raki.  Við fengum okkur að borða á stað rétt hjá hótelinu.  Ég pantaði mér tandoori kjúkling en Gaui vildi Laksa með kjúkling.  Þetta ruglaði þjóninn en hann sagði já á endanum og kom svo með kjúklinga snitzel franskar og kokteilsósu handa Gaua. Jummí!
Miðinn í Monorailið
Nýkomin á stöðina við hótelið

Ekkert smá fersk
Guðjón með gourmet snitzel


Partur 2. Kuala Lumpur

Við sváfum mjög vel en vöknuðum bæði um 5 leitið og ákváðum að byrja daginn snemma með því að kíkja á netið, skipuleggja daginn og svona.  Við dottuðum aðeins og fannst það bara allt í lagi afþví við stilltum vekjaraklukku kvöldið áður.  Henný hrökk svo upp korter yfir sjö, hálftíma seinna en við ætluðum að vakna, við höfðum bæði stillt klukkurnar vitlaust.  Við rukum út og tókum Monorail niður á KL Sentral.  Skelltum okkur á Malasískt kaffihús og fengum okkur morgunmat.  Gaui fékk sér kókoskarrý og Henný fékk sér kjúklingasúpu.  Hér eru morgunverðar hefðir svolítið öðruvísi en við erum vön en eins og þeir segja "When in Kuala Lumpur".   Eftir morgunmat tókum við lest í Batu Caves.  Henný vingaðist við tvo littla krakka í lestinni.  Það er mjög gaman að vera í lestunum og fylgjast með mannlífinu.  Það virðist ekki vera neitt sem heitir borgar skipulag. Splúnku ný glæsihýsi rísa við hliðina á byggingum í niðurníðslu.  Fólk byggir sér kofa hvar sem það getur.  Á auðum landsvæður, á byggingarsvæðum, umferðareyjum og lífið virðist bara aðlagast því.
Batu Hellarnir eru saman safn af hellum upp í fjalli sem eru notaðir sem Hindu hof og fyrir utan er allt í Hindu táknum og styttum.  Þar á meðal stæðsta stytta af guðinum Murga. Upp í hellana eru 272 tröppur. Stemmingin í kringum hellana var æðisleg, allskonar fólk (aðallega Hinduar), tónlist, apar og musteri (smá sýnishorn í vídjóinu að neðan).  Við vorum fegin að hafa ákveðið að fara snemma þannig að hitinn var ekki óbærilegur þegar við gengum upp.  Rétt upp fyrir 30 stiginn og 80 prósent raki. Henný var hálf kvíðin að takast á við þessa hæð afþví tröppurnar voru vel brattar.  En við fórum létt með þetta - gátum ekki annað þar sem sumar kvinnurnar voru þarna á pinna hælum að tríttla upp í hof.  Útsýnið var stórkostlegt þegar við komumst á toppinn og fullt af skemmtilegum hofum á víð og dreif um hellirinn.
Gaui eyddi hellings tíma bæði fyrir utan og uppi í hellinum að fylgjast með öpunum sem voru mjög ágengir á bæði fólk og mat.  Einn gáfaður túristi gaf einum apanum flösku af Powerade og aparæfilinn í bláum powerade trylling fór að hrella fólk af nýrri ákefð.
Gaui fékk sér kókosvatn úr kókoshnetu þegar við komum niður og hafði vonað að ná að gefa öpunum hnetuna sjálfa en þeir voru allir horfnir, vissu greinilega að það voru athafnir að byrja inni í hofunum og því best að halda þangað inn að betla.
Kókoskarrý í morgunmat
Núðlusúpa
Algjör pæja
Musteri við Batu

Hörku kall
Aparnir í essinu sínu



Maður verður að herma

 



 

 

 

 






Þegar við höfðum fengið nóg af öpum og hellum skelltum við okkur í lestina niður að Chinatown Market.  Tókum smá krókaleið frá lestarstöðinni en þá sér maður bara meira af borginni :) Röltum svo um markaðin í leit af mat.  Henný fannst rosalega gaman að skoða feik töskurnar og varninginn en Gaui var ekki eins hrifin.  "Wanna buy" "hey ladieee you like" og "Bro wanna buy some DVD´s" á endanum fórum við á Dim Sum stað.  Henný ákvað að skella sér á klósettið en brá illilega og hljóp út aftur í sjokki.  Þetta voru fyrstu kynni okkar af hinu klassíska Asíska klósetti.  Gat í gólfinu, fata með vatni og slanga með byssu (ekki actually gangster slanga að ræna mann heldur svona garðslanga með þrýstibyssu á endanum) Gaui kallar þessar slöngur "rassaskolara".  Henný reyndi aftur eftir smá en allt kom fyrir ekki.  Þar sem Gaui var komin með ógeð á slæðum og töskum ákváðu við að kíkja á annan markað rétt hjá.  Á leiðinni sáum við KFC - Henný greyið var farin að ganga frekar undarlega þannig að við trúðum ekki að Ofurstinn sjálfur myndi bregðast okkur í salernisgeiranum og laumuðum okkur inná klósettið.  En nei nei enn önnur holan...nú var að duga eða drepast.  Henný kom út lítrum léttari en lélegri í hnjánum fyrir vikið.  
Central Market átti að vera "local"vörur en var mest allt bara túrista dót og minjagripir. En við höfuðum mjög gaman af því að labba þar og það besta var að þetta var inni og það var loftkæling.  
Kælandi
Namm namm

Því næst héldum við í fjármála hverfið til þess að sjá Petronas Towers og KL Tower.  Löbbuðum um heillengi (fundum Sephora!!!!) og settumst niður á Hollenskum stað sem var frekar dýr og spilaði bara diva ballöður - við fengum Cindy Lauper, Whitney Houston og Shania Twain umkringd 50+ hvítum karlmönnum með tattú. Klassík!
Eftir að hafa náð að chilla vel á pöbbnum röltum við í átt að turnunum.  Turnarnir eru magnaðir og rosalega flottur garður við þá þar sem við eyddum hátt í tveimur tímum að fylgjast með gosbrunnum sem voru með listdans og gerðu aldrei það sama í tvo klukkutíma.  Við skemmtum okkur líka mjög vel við að fylgjast með karltusku sem hafði misst vitið og hafði eitthvað við gosbrunnana að sækja
Petronas Towers


Mjög dónaleg að sýna á mér sólana


Félaginn átti eitthvað inn hjá gosbrunninum 



Eftir að hafa setið og skemmt okkur yfir dramatíkinni í Petronas garðinum viltumst við heillengi í leit af KL Turninum...við vissum að hann var þarna einhverstaðar en gallinn við að vera umkringdur háhýsum er að þau skyggja soldið á hin háhýsin. En við hoppuðum á endanum uppí leigubíl og komumst að því að við vorum að labba all skverlega í vitlausa átt en enn og aftur við fengum að sjá mörg flott 5 stjörnu hótel sem við hefðum annars ekki séð.  Aníhú við brununuð uppí KL Tower sem er 335 metrar á hæð og uppá stórri hæð þannig að hann turnar vel yfir borginni. Við vildum vera þar um sólsetur til þess að sjá útsýnið í birtu og myrkri.  Útsýnið var alveg æðislegt og gaman að sjá borgina frá nýju sjónarhorni. 
 



      

 

Eftir þetta vorum við orðin frekar þreytt og komin tími á kvöldmat. Við ákváðum að kíkja á markað nálægt hótelinu sem við höfðum lesið um og átti að vera "ótúrista".  Gallin er að Mallar (fólk sem býr í Malasíu) dýrka vestrænan mat, þannig að maturinn á markaðnum er með vestrænu ívafi. Gaui var alveg staðráðin í að borða ekkert vestrænt svona snemma í ferðinni.  Markaðurinn var stórskemmtilegur og gaman að sjá almenna borgara versla.  Nú er klukkan orðin 9 og við orðin vel svöng.  Við löbbum og löbbum en ekkert var "authentic" malasískur matur.  Á endanum sjáum við glitta í hótelið og Henný missir smá kúlið og stormar inn á McDonalds, Gaui greyið í sjokk/horror fylgir á eftir staðráðinn í að þver neita að borða þar.  En það sem drengurinn gleymdi er að það er frítt WiFi á McDonalds þannig að við gátum leitað af matsölustað á netinu..hverju hafi verið mælt með og svo framvegis. En hvað haldiði ALLIR staðir í nágrenninu voru með vestrænan mat.  Uppgefin og frekar miður okkar ákváðum við að fara bara eitthvað stigum út litum til hliðar og sáum voðalega krúttlegan foodcourt.  Food court er mjög vinsælt í Suðaustur Asíu.  Þar eru margir litlir veitingastaðir saman og deila bara borðum.  Þar fengum við æðislegan Malasískan mat fyrir svefnin. Svo var bara strunsað uppá hótel, tekið smá Skype við ísland og svo beint í háttinn

Loksins loksins matur!

Kuala Lumpur er frábær borg.  Allir mjög vinalegir og það virðist vera mikið umburðalyndi milli kynþátta og trúarbragða en við myndum hvorugt vilja vera þar í langan tíma.  Nokkrir dagar hér eru nóg til að sjá allt og svo eru bara búðir og barir.