Við sváfum mjög vel en vöknuðum bæði um 5 leitið og ákváðum að byrja daginn snemma með því að kíkja á netið, skipuleggja daginn og svona. Við dottuðum aðeins og fannst það bara allt í lagi afþví við stilltum vekjaraklukku kvöldið áður. Henný hrökk svo upp korter yfir sjö, hálftíma seinna en við ætluðum að vakna, við höfðum bæði stillt klukkurnar vitlaust. Við rukum út og tókum Monorail niður á KL Sentral. Skelltum okkur á Malasískt kaffihús og fengum okkur morgunmat. Gaui fékk sér kókoskarrý og Henný fékk sér kjúklingasúpu. Hér eru morgunverðar hefðir svolítið öðruvísi en við erum vön en eins og þeir segja "When in Kuala Lumpur". Eftir morgunmat tókum við lest í Batu Caves. Henný vingaðist við tvo littla krakka í lestinni. Það er mjög gaman að vera í lestunum og fylgjast með mannlífinu. Það virðist ekki vera neitt sem heitir borgar skipulag. Splúnku ný glæsihýsi rísa við hliðina á byggingum í niðurníðslu. Fólk byggir sér kofa hvar sem það getur. Á auðum landsvæður, á byggingarsvæðum, umferðareyjum og lífið virðist bara aðlagast því.
Batu Hellarnir eru saman safn af hellum upp í fjalli sem eru notaðir sem Hindu hof og fyrir utan er allt í Hindu táknum og styttum. Þar á meðal stæðsta stytta af guðinum Murga. Upp í hellana eru 272 tröppur. Stemmingin í kringum hellana var æðisleg, allskonar fólk (aðallega Hinduar), tónlist, apar og musteri (smá sýnishorn í vídjóinu að neðan). Við vorum fegin að hafa ákveðið að fara snemma þannig að hitinn var ekki óbærilegur þegar við gengum upp. Rétt upp fyrir 30 stiginn og 80 prósent raki. Henný var hálf kvíðin að takast á við þessa hæð afþví tröppurnar voru vel brattar. En við fórum létt með þetta - gátum ekki annað þar sem sumar kvinnurnar voru þarna á pinna hælum að tríttla upp í hof. Útsýnið var stórkostlegt þegar við komumst á toppinn og fullt af skemmtilegum hofum á víð og dreif um hellirinn.
Gaui eyddi hellings tíma bæði fyrir utan og uppi í hellinum að fylgjast með öpunum sem voru mjög ágengir á bæði fólk og mat. Einn gáfaður túristi gaf einum apanum flösku af Powerade og aparæfilinn í bláum powerade trylling fór að hrella fólk af nýrri ákefð.
Gaui fékk sér kókosvatn úr kókoshnetu þegar við komum niður og hafði vonað að ná að gefa öpunum hnetuna sjálfa en þeir voru allir horfnir, vissu greinilega að það voru athafnir að byrja inni í hofunum og því best að halda þangað inn að betla.
 |
| Kókoskarrý í morgunmat |
 |
| Núðlusúpa |
 |
| Algjör pæja |
 |
| Musteri við Batu |
 |
| Hörku kall |
 |
| Aparnir í essinu sínu |
 |
| Maður verður að herma |
 |
|













Þegar við höfðum fengið nóg af öpum og hellum skelltum við okkur í lestina niður að Chinatown Market. Tókum smá krókaleið frá lestarstöðinni en þá sér maður bara meira af borginni :) Röltum svo um markaðin í leit af mat. Henný fannst rosalega gaman að skoða feik töskurnar og varninginn en Gaui var ekki eins hrifin. "Wanna buy" "hey ladieee you like" og "Bro wanna buy some DVD´s" á endanum fórum við á Dim Sum stað. Henný ákvað að skella sér á klósettið en brá illilega og hljóp út aftur í sjokki. Þetta voru fyrstu kynni okkar af hinu klassíska Asíska klósetti. Gat í gólfinu, fata með vatni og slanga með byssu (ekki actually gangster slanga að ræna mann heldur svona garðslanga með þrýstibyssu á endanum) Gaui kallar þessar slöngur "rassaskolara". Henný reyndi aftur eftir smá en allt kom fyrir ekki. Þar sem Gaui var komin með ógeð á slæðum og töskum ákváðu við að kíkja á annan markað rétt hjá. Á leiðinni sáum við KFC - Henný greyið var farin að ganga frekar undarlega þannig að við trúðum ekki að Ofurstinn sjálfur myndi bregðast okkur í salernisgeiranum og laumuðum okkur inná klósettið. En nei nei enn önnur holan...nú var að duga eða drepast. Henný kom út lítrum léttari en lélegri í hnjánum fyrir vikið.
Central Market átti að vera "local"vörur en var mest allt bara túrista dót og minjagripir. En við höfuðum mjög gaman af því að labba þar og það besta var að þetta var inni og það var loftkæling.
 |
| Kælandi |
 |
| Namm namm |
Því næst héldum við í fjármála hverfið til þess að sjá Petronas Towers og KL Tower. Löbbuðum um heillengi (fundum Sephora!!!!) og settumst niður á Hollenskum stað sem var frekar dýr og spilaði bara diva ballöður - við fengum Cindy Lauper, Whitney Houston og Shania Twain umkringd 50+ hvítum karlmönnum með tattú. Klassík!
Eftir að hafa náð að chilla vel á pöbbnum röltum við í átt að turnunum. Turnarnir eru magnaðir og rosalega flottur garður við þá þar sem við eyddum hátt í tveimur tímum að fylgjast með gosbrunnum sem voru með listdans og gerðu aldrei það sama í tvo klukkutíma. Við skemmtum okkur líka mjög vel við að fylgjast með karltusku sem hafði misst vitið og hafði eitthvað við gosbrunnana að sækja
 |
| Petronas Towers |

 |
| Mjög dónaleg að sýna á mér sólana |
 |
Félaginn átti eitthvað inn hjá gosbrunninum   |
Eftir að hafa setið og skemmt okkur yfir dramatíkinni í Petronas garðinum viltumst við heillengi í leit af KL Turninum...við vissum að hann var þarna einhverstaðar en gallinn við að vera umkringdur háhýsum er að þau skyggja soldið á hin háhýsin. En við hoppuðum á endanum uppí leigubíl og komumst að því að við vorum að labba all skverlega í vitlausa átt en enn og aftur við fengum að sjá mörg flott 5 stjörnu hótel sem við hefðum annars ekki séð. Aníhú við brununuð uppí KL Tower sem er 335 metrar á hæð og uppá stórri hæð þannig að hann turnar vel yfir borginni. Við vildum vera þar um sólsetur til þess að sjá útsýnið í birtu og myrkri. Útsýnið var alveg æðislegt og gaman að sjá borgina frá nýju sjónarhorni.






Eftir þetta vorum við orðin frekar þreytt og komin tími á kvöldmat. Við ákváðum að kíkja á markað nálægt hótelinu sem við höfðum lesið um og átti að vera "ótúrista". Gallin er að Mallar (fólk sem býr í Malasíu) dýrka vestrænan mat, þannig að maturinn á markaðnum er með vestrænu ívafi. Gaui var alveg staðráðin í að borða ekkert vestrænt svona snemma í ferðinni. Markaðurinn var stórskemmtilegur og gaman að sjá almenna borgara versla. Nú er klukkan orðin 9 og við orðin vel svöng. Við löbbum og löbbum en ekkert var "authentic" malasískur matur. Á endanum sjáum við glitta í hótelið og Henný missir smá kúlið og stormar inn á McDonalds, Gaui greyið í sjokk/horror fylgir á eftir staðráðinn í að þver neita að borða þar. En það sem drengurinn gleymdi er að það er frítt WiFi á McDonalds þannig að við gátum leitað af matsölustað á netinu..hverju hafi verið mælt með og svo framvegis. En hvað haldiði ALLIR staðir í nágrenninu voru með vestrænan mat. Uppgefin og frekar miður okkar ákváðum við að fara bara eitthvað stigum út litum til hliðar og sáum voðalega krúttlegan foodcourt. Food court er mjög vinsælt í Suðaustur Asíu. Þar eru margir litlir veitingastaðir saman og deila bara borðum. Þar fengum við æðislegan Malasískan mat fyrir svefnin. Svo var bara strunsað uppá hótel, tekið smá Skype við ísland og svo beint í háttinn


 |
| Loksins loksins matur! |
Kuala Lumpur er frábær borg. Allir mjög vinalegir og það virðist vera mikið umburðalyndi milli kynþátta og trúarbragða en við myndum hvorugt vilja vera þar í langan tíma. Nokkrir dagar hér eru nóg til að sjá allt og svo eru bara búðir og barir.
:D frábært :D bíð spennt eftir framhaldi :D :D
ReplyDelete